Svona er lífið
Ýmislegt nothæft
16.10.2006 23:24:28 / Luvisa27

Ákvað að breyta til....

Búin að opna nýju síðu http://luvisan.bloggar.is/

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.10.2006 00:02:01 / Luvisa27

Stundum er víst bara hægt að láta sig dreyma !!!

Ég hugsa að ég verði að gefa upp á bátinn drauminn minn um að breyta til og gera það sem mig langaði að gera, ég sé ekki fram á það peningalega að það verði hægt :cry: Vildi óska að ég myndi vinna í lottói og þá ekki til að kaupa mér flotta hluti heldur þá til að borga niður aðra hluti svo ég komist í skóla, maður lifir víst ekki á loftinu einu saman. Maður fær bara víst ekki allt sem manni langar í.

Farin að sofa líður illa og er leið.


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 15:47:08 / Luvisa27

Jæja smá ferðasaga

Jæja þá er ég komin heim aftur og drulluþreytt, það tekur sko á að skoða allar búðirnar á Oxfordstreet. Spurning um að koma með smá yfirlit yfir síðustu daga. Á fimmtudaginn fór ég sem sagt út og var samferða Birnu og Teiti ferðin út gekk rosalega vel og engin flughræðsla í gangi hjá mér , við vorum sótt á flugvöllin og keyrð á hótelið ofur næs sko, við vorum komum á hótelið um svona tíu held ég um kvöldið og þá var bara byrjað að koma sér fyrir fá sér að borða sumir fengu sér öllara og svo var farið snemma í rúmið, enda átti að taka daginn snemma og verlsa eylítið.  Enda vorum við Stella mættar ofur snemma á Oxfordstreet daginn eftir að byrja versla, held að við höfum nú eytt mestum tímanum inn í Babygap enda ekkert smá flott barnaföt. Veðrið var nú ekkert ofur skemmtilegt þennan morguninn enda þurftum við að fara upp á hótel að skipta um föt, svona freka mikil rigning. Við ákváðum því að drífa okkur í mall fyrst að veðrið var svona lítið skemmtilegt en á leiðinni þangað létti til og sólin fór að skína :( en það var svo sum í lagi enda mallið ókeðslega glatað og engar flottar búðir þar eina sem ég græddi á þessari ferð í mallið var barnabílstóllinn sem ég keypti handa Katrínu. Jæja en ekki meira af búðarrápi enda var ég í búðum alla dagana :)

 

 



En á föstudagskvöldinu fórum við í Dominion Theatre að sjá We will rock you og ómægod hvað þetta var flott allt saman sýningin var frábær kannski aðeins í lengra lagi en skemmtileg í alla staði. Eftir sýninguna fórum við út að borða á Planet Hollywood þar sem við hittum fleira skemmtilegt fólk, eftir þetta allt saman var svo bara labbað upp á hótel og farið í háttinn.

 

 



Laugardagurinn frá 10 – 17 verslað :)

Svo var bara farið að taka sig til fyrir árshátíðina sem var um kvöldið, byrjaði með fordrykk klukkan sjö, Gísli Einars held alveg örugglega að hann sé Einars í út og suður þáttunum var veislustjóri og það sem maðurinn er fyndinn vá ég hló allan tíman af honum, algjör snillingur þarna á ferð. Maturinn var voða góður og skemmtiatriðin fín, en samt sem áður fór ég bara snemma upp á herbergi enda engin drykkja í gangi, og byrjaði sem sagt að pakka niður enda átti ég að tjekka mig út ellefu daginn eftir.

 

 



Sunnudagurinn fór í búðarráp og út að borða á Pizza Express fann hann loksins með hjálp að heiman hefði engan vegin verið sátt við að fara heim án þess að hafa farið þangað. Um hálf sex var svo tekin leigubíll út á flugvöll. Ég var svo heppin að þurfa borga 54 pund í yfirvigt en var með rúm 8 kíló yfir þrátt fyrir að ég kom bílstólnum á vinnufélaga minn, en ég er ekki sátt þar sem maður má hafa 8 kíló í handfarangri og ég var með engan, hefði betur átt að taka fluffu töskuna með út og setja í hana 8 kíló þá hefði þetta sloppið, jæja maður verður alltaf vitur eftir á. Lennti svo hálf tólf komin heim um eitt og vá hvað það var gott að koma heim.

 

 



katrín Þóra var eins og engill alla helgina og var voða dugleg að sofa á næturnar fyrir pabba sinn náði yfirleitt 6-7 tíma svefni í einu, en nei það breyttist um leið og ég kom heim og vaknaði hún þrisvar sinnum í nótt :(

Jæja læt þetta duga að sinni og ef þið farið að pæla í hvort ég hafi bara verið í búðum og ekki skoðað neitt, já þá er það satt enda er ég búin að skoða flest þarna sem ferðamenn skoða og  nennti ekki að gera það aftur :)


» 10 hafa sagt sína skoðun

04.10.2006 21:00:51 / Luvisa27

Farið að styttast !!!

Jæja stressið farið að gera vart við sig með tilheyrandi magaverkjum :cry: en tilhlökkunin er auðvitað líka til staðar annað væri bara skrítið. Er lítið búin að geta pakkað í dag þar sem erfitt er að pakka á klósettinu :D þannig að nóg verður að gera í fyrramálið. Ætla að leggja af stað um eitt á morgun og hitta Birnu og kall á vellinum og tjekka mig inn með þeim svo ég siti nú hjá einhverju skemmtilegu fólki þessar þrjá tíma í vélinni. Jæja farin að reyna gera eitthvað síjú leiter...

» 3 hafa sagt sína skoðun

01.10.2006 22:20:19 / Luvisa27

Ég sef ekki með bangsa !!

Doddi minn er ekki bangsi hann er koddi og maður sefur með kodda ekki satt :!: En hann lítur nú samt svolítið bangsalega út 8) og hefur hann fylgt mér frá því að ég saumaði hann í 9.bekk. Hann er kringlóttur grár með löng eyru og einu sinni hafði hann augu, munn og nef en það fór af í þvotti fyrir einhverjum árum. Hef oft hugsað um það hvenar ég muni segja skilið við hann, hélt oft að það yrði þegar ég væri komin með kall og orðin eitthvað gömul, en ég er komin með kall og orðin þó nokkuð gömul en Doddi dokir ennþá við. Enda get ég ekki sofnað á kvöldin nema hafa hann undir sænginni hjá mér 8| og hann titrar samt ekki. Ég hugsa því að hann Doddi muni fylgja mér í gröfina. Man einhver eftir honum Dodda ?

María Mist er orðin Metallicu fan eða allvega á góðri leið með það, gamli góði svarti diskurinn er búinn að vera í spilaranum í bílnum í einhvern tíma og þar sem mér finnst þetta vera besti diskur allra tíma þá þarf ég stundum að hækka svolítið í græjunum þegar ég fer að rúnta. María er því farin að fýla Metallicu í tætlur og biður mig alltaf að kveikja á spilaranum þegar við förum í bílinn og jibbí ég þarf því ekki lengur að kveikja á barnastöðinni.

Ég er ekki ennþá búin að átta mig almennilega á því að amma hafi farið til himna í sumar, kannski af því að ég bjóst ekki við því að hún færi strax. Aldrei hafði ég búist við því að ég myndi syrgja hana svona rosalega, kannski af því að ég var búin að byggja varnarvegg gangvart henni. Mér fannst alltaf eins og hún tæki mér öðruvísien hinum barnabörnunum, en það var víst bara hræðsla og óöryggi hjá mér vegna þess að ég var ekki blóðbarnabarn hennar. En ég held það hafi ekki skipt hana neinu máli þetta var bara eitthvað sem ég bjó til sem barn í hausnum á mér kannski hefur það gerst þegar hún hefur verið að skamma mig fyrir eitthvað sem ég átti skilið og hún hefði allveg skammað hin barnabörnin líka, en ég tók því á annan hátt og hef alltaf gert. Núna sé ég svo eftir því, sé svo eftir því að hafa ekki verið duglegri við að heimsækja hana, sé svo eftir því að hafa ekki verið hlýlegri við hana, sé eftir svo mörgu sem ég gerði ekki eða gerði, sé eftir að hafa ekki tekið mynd af henni með Katrínu í þetta eina skipti sem hún sá hana þegar ég loksins drullaði mér í smá heimsókn. En núna get ég ekkert gert og samviskubitið er að fara með mig því ég elskaði hana ofur mikið ég bara vissi ekki af því fyrr en hún dó því varnarveggurinn minn var svo þykkur.


» 7 hafa sagt sína skoðun

29.09.2006 20:40:36 / Luvisa27

Ææ fólk er forvitið ...

Til að koma ekki illa fram við vissa aðila,  þá segji ég ekkert strax þarf fyrst að ganga frá ýmsu áður en ég kjafta frá :D

» 5 hafa sagt sína skoðun

29.09.2006 20:39:23 / Luvisa27

Ég er að spá !!

Hversu margar töskur á ég að taka með mér út láta þá stærstu duga í töskusettinu eða fara út með mið töskuna inn í stóru töskunni til öryggis :$ miklar pælingar....

» 4 hafa sagt sína skoðun

27.09.2006 21:18:50 / Luvisa27

Alltaf jafn léleg að blogga !!

Jæja ekki nema rúm vika í London ferðina miklu :) Jibbí jei tilhlökkunin farin að gera vart við sig á ýmsan hátt. Veit samt ekki hvernig það leggst í mig að yfirgefa litluna mína, er vön að yfirgefa stóruna mína þar sem hún hefur auðvitað mikið verið hjá pabba sínum, en ég verð bara að reyna hugsa um það að eyða ekki tímanum úti í söknuð heldur að njóta mín að vera ein og skemmta mér. Margt og mikið að gerjast í kollinum á mér þessa dagana og mikil hætta á að ég breyti mikið til á næstu mánuðum, enda bara skemmtilegt að hafa markmið. Litlan mín er komin með tönnslu númer 2 bara sætt. Jæja ætla að fara horfa á módelin bestu kveðjur......

» 4 hafa sagt sína skoðun

15.09.2006 22:56:17 / Luvisa27

Er ekki alveg að skilja !

Stundum finnst mér eins og ég fari að sofa á föstudegi og vakni aftur á föstudegi 8| afhverju í andskotanum líður tímin svona helvíti hratt :evil: líður hann hraðar eftir því sem maður eldist eða er þetta svona hjá öllum ?? En allavega þá er komin tönn jamms pabbin fann tönnslu í dag, reyndar eitthvað sem við höfum verið að bíða eftir með tilheyrandi slefi og pirringi í gómi. Og í dag var farið að sjást í hana bara gaman að því enda litla skrúfan orðin fimm og hálfs mánaða.

Ég fékk að sofa í nótt eftir annsi langan tíma, skipti við Maríu um herbergi skellti einni svefntöflu í mig og rotaðist 8) og sjétt hvað það var gott ég er alveg endurnærð enda náði ég góðum átta tímum og lagði mig svo aftur eftir að hafa komið Maríu í skólann.

Jæja farin að glápa á imbann....................


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.09.2006 20:53:54 / Luvisa27

Ég og áfengi eigum ekki samleið !!

Jæja fór í vinnupartý í gær sem var mjög skemmtilegt, ég drakk bríserana mín og fann aðeins á mér á tímabili en svo nennti ég ekki meir hræðslan og kvíðinn við að vakna í dag eyðilagði fyrir mér svo ég meikaði ekki að reyna drekka meira :( Fórum á players og hittum þar fullt af visa fólki sem var í stuði, Sálin var að spila en ég meikaði ekki einu sinni að taka einn dans þar sem bakið og grindin mín voru í einhverju fokki eftir skrítna setu um kvöldið :S ég er sem sagt orðið gamalmenni sem get varla dottið í það af hræðslu og verkjum í baki 8| Vá en ég er nú bara 28 ára hellú. Annað hvort verð ég að finna lyf sem koma algjörlega í veg fyrir þinnku eða bara að hætta þessu allveg. Þannig að Stella mín sorry ekki búast við miklu af mér úti ég á sjálfsagt ekki eftir að sporðrenna áfenginu en þá er spurning um að fara bara á ýmindunar fyllerí hahaha.

En allavega þá fór ég heim af Players um eitt og fékk far hjá Bjarna á vaktbílnum góða, lét mig bara hverfa og var mjög fegin þegar ég kom heim að hafa ekki farið á meira skrall og ennþá fegnari í morgun þegar ég vaknaði og fann ekki mikið fyrir kvöldinu, þó ég sé nú búin að vera með smá þinnku í dag þá er það lítið miðað við það sem hefði getað orðið.


» 17 hafa sagt sína skoðun

02.09.2006 22:34:57 / Luvisa27

Ég og netið erum eitt ía ía ó !!

Get svoleiðis svarið það.....það er laugardagskvöld og ég heng í tölvunni :| svaka spennandi eða þannig. En allvega þá skellti ég mér til hennar Siggu í gærkvöldi með Guðnýju og Hildi en hún var með kynningu frá romatik.is haha svaka spennó híhí en rosa sniðugt og margt skemmtilegt að sjá :lol: og gaman líka að hitta gellurnar og bara skreppa aðeins að heiman. Reyndar er ég svo að pæla í að skella mér á djammið næsta föstudagskvöld með deildinni minni úr vinnunni enda frekar langt síðan ég hef djammað hálf skammarlegt að segja frá því múahhaha en ólétta og fleira koma auðvitað inn í. Jæja farin að reyna glápa allavega á imbann eða eitthvað.

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.09.2006 21:14:46 / Luvisa27

Fokk !!!

Fjórtán handteknir í Bretlandi

Lögreglan í Lundúnum handtók í gærkvöldi og í morgun fjórtán menn sem grunaðir eru um að hafa ætlað að fremja hryðjuverk í Bretlandi. Málið tengist hvorki handtöku tuttugu manna í júlí, sem ætluðu að sprengja flugvélar á leið til Bandaríkjanna, né hryðjuverkunum í Lundúnum í fyrra. Lögreglan vill ekki gefa upp hvað nákvæmlega mennirnir fjórtán höfðu í hyggu að öðru leyti en því að talið sé að þeir hafi um skeið safnað saman ungum mönnum í þeim tilgangi að fremja hryðjuverk. Lögreglan hafði fylgst með mönnunum mánuðum saman áður en látið var til skarar skríða í gærkvöldi og í morgun.


Fékk nú vægt sjokk þegar ég sá þessa frétt í sjónvarpinu þá aðalega vegna þess að þessir menn voru handteknir á Hótelinu/veitingahúsinu sem við Jón dvöldum á síðast þegar við fórum til London frekar krípí svona.

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 22:50:44 / Luvisa27

Grát grát og gníst gníst

:$ púff var að kveðja hana systir mína reyndar er ég nú orðin vön að kveðja hana, en það var samt erfiðara í þetta skiptið þar sem hún er að fara flytja til Danmerkur í nótt til að fara í háskólanám :cry: þannig að hún er ekkert á leiðinni heim fyrr en eftir einhver ár :cry: verð að finna mér nýjan heimaling sem sagt einhver sem bíður sig fram :!:

» 8 hafa sagt sína skoðun

27.08.2006 22:49:39 / Luvisa27

Ég hef komist að ýmsu !!!

Ég held að systkini mín fái verðlaun fyrir að vera djamm kóngar ársins 8) eða þannig 8| En þannig er mál með vexti að bæði skelltu þau sér á djammið í gærkvöldi og komust hvorugt í bæinn vegna mikillar gleði og ölæði og kannski brjálæði, mömmu stóð nú ekkert á sama þegar hún vaknaði í morgun og sá að hvorugt hafði skilað sér heim í nótt reyndar svosum ekkert skrítið með eldra barnið þar sem það sofnar oft út frá djammi heima hjá vinkonu sinni án þess þó að hafa náð í bæinn. En yngra barnið það var nú eitthvað annað með það þar sem það lætur alltaf vita af sér en hafði ekki gert í þetta skipti, mamma hélt nú kannski að drengurinn hefði komist á sjéns og ákvað að vera ekkert að hringja en hafði samt miklar áhyggjur. Drengurinn birtist um ellefu í morgun og hafði gist fangageymslur ásamt tveimur vinum sínum og ástæðan kom á textavarpinu í frétt 114 held ég , en þeir félagar ásamt fullt af krökkum ákváðu að skella sér í breiðholtslaug klukkan þrjú í nótt 8| aha og auðvitað kom löggan og tók þá :haha: og þetta er greinilega ekki eins og í bíómyndunum þegar fólk fær að hringja eitt símtal nibbs því löggan var bara hörð og mátti brósi ekki einu sinni hringja heim í foreldrana til að láta vita af sér hvaða hvaða.

Og ég sem hélt að ég væri svarti sauðurinn í fjölskyldunni en ég kemst nú ekki með nálægt þeim. PIFF


» 9 hafa sagt sína skoðun

23.08.2006 19:06:22 / Luvisa27

Jafnrétti mæ ass

Afhverju er það þannig þegar að konan á heimilinu verður veik þá verður hún samt sem áður að sinna öllum skyldum innan heimilisins sem sagt sjá um börn og annað, að liggja inn í rúmi og fá að vera veik í friði er eitthvað sem ekki er til maður verður bara að herða sig upp. En svo er allt annað mál þegar að karlmaðurinn verður veikur, karlkynið verður yfirleitt það lasið að hann verður að fá að liggja inn í rúmi hreyfingarlaus í nokkra daga án þess að lyfta litla fingri. Þetta er staðreynd yfir alla karlmenn ég er búin að afla mér mikið af heimildum um þessi mál :D Svo endilega tjáið ykkur um þetta vil heyra skoðanir, því ég vil endilega snúa þessu við :haha:

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12